Goðheima svitahof/sweat

Í þetta sweat eru allir velkomnir Hér er leitast við að skilja óttann eftir í tjaldinu. Skilja það eftir sem er að aftra okkur í því að ganga á vegi sálar okkar. Skilja það eftir sem stoppar okkur í því að vera það sem við erum í raun og veru. Gefa okkur hugrekki til að sína allan okkar mikilfengleika sem er ekkert lítill.

Þetta sweat er oftast nær fjórar umferðir. Hver umferð hefur sinn tilgang,,,.Ef að gróft er líst er það svona: steinar eru hitaðir á eldi og bornir inn í lítið tjald þar sem þeir eru settir í litla grifju miðsvæðis og fólk situr í hring um. Tjaldinu er lokað og sungnir eru einfaldir söngvar ásamt fleirru. Fyrsta umferðin eru tengingar við það sem í kringum okkur er og við skoðum hugann okkar. Önnur er fyrir líkamann okkar fagra og innri eld. Í þriðja eru bænasöngvar sungnir og þeir tjá sig sem það vilja. Fjórða förum við í gegnum þetta aftur og skoðum þakklætið sem er byrjun á öllu. Opnað er á milli umferða og fólk getur skroppið út.

Og til að komast í sweatið er að fylgjast með þegar það er auglýst er á Facebook,,, Sweat

eða einfaldlega að biðja um sweat, hvort sem það er einstaklingur eða hópur,,,,biðja hér á síðuni eða hringja í 896 4909,,,godheimar@godheimar.is

Hópar eða nokkrir saman geta pantað daginn sem þeim hentar og að sjálfsögðu getur einstaklingur beðið um einn ákveðin dag og við gerum okkar besta til að finna fólk svo það geti orðið sweat þann daginn,,,,,,,,